| © 1994 - 2010 Jón Ingvar Jónsson | Bragorðaskrá  Upphafssíða |
|
|
|
Afdráttarháttur
Afdráttur eða afdráttarháttur er sennilega erfiðasta rímþraut sem hægt er að hugsa sér. Afdráttur er aðeins til undir ferkvæðum háttum, það er háttum með fjórar ljóðlínur. Afdráttur er þannig gerður, að ortur er fyrri partur og seinni parturinn er síðan myndaður með því að fjarlægja fyrsta bókstaf hvers bragliðar í fyrri partinum. Í dæminu hér að neðan eru svigar utan um upphafsstafi hvers bragliðar, en þá vantar í seinni partinn, sem reyndar þyrfti ekki að sýna. (D)rósir / (g)anga, / (d)reyrinn / (n)iðar, Í lýsingu rímnaháttarins draghendu er að finna vísu undir afdráttarhætti. |
| © 1994 - 2010 Jón Ingvar Jónsson |