| © 1994 - 2010 Jón Ingvar Jónsson | Rímnahættir  Bragorðaskrá  Upphafssíða |
|
|
| Afhending
Afhending hefur tvær ljóðlínur og enda báðar á tvíliðum sem ríma saman. Fyrri ljóðlínan samanstendur af sex bragliðum en sú seinni af fjórum. Stuðlar í fyrstu línu eru þrír og verður stuðull að vera í þriðja braglið og síðasti stuðull verður að vera í fimmta braglið. Seinni línan er sér um tvo stuðla. Eftir / Vilhjálms / utan/för til / eski/móa Afhending er nákvæmlega eins og fyrstu tvær ljóðlínur Braghendu og ber nafn af því. Reyndar má líta á fyrstu ljóðlínuna sem tvær ljóðlínur, með fjóra og tvö bragliði eins og úrkast. Afhending er algengur bragarháttur og ætti ekki að vefjast fyrir byrjendum. |
| © 1994 - 2010 Jón Ingvar Jónsson |