| © 1994 - 2010 Jón Ingvar Jónsson | Rímnahættir  Bragorðaskrá  Upphafssíða |
|
|
|
Braghenda
Braghenda er venjulega rituð í þremur línum: Verndað / getur / völd og / fé sé / vel á / haldið, Bragfræðilega séð er hún þó fjórar línur, fyrri tvær eins og úrkast, en seinni tvær eins og breiðhenda. Eina krafan um rím er sú að tvær síðustu línurnar myndi endarím saman. Vegna þessa er aðeins hægt að stuðla braghendu rétt með því að hafa stuðul í 3. braglið fyrstu línu og höfuðstaf í 5. braglið, sem er 1. bragliður annarar línu sé braghendan sett fram í fjórum línum. Sá stuðull sem vantar verður þá að vera í 1., 2. eða 4. braglið fyrstu línu. Í braghendu eru allir bragliðir tvíliðir og rímið því kvenrím. Mjög vinsælt er að láta síðasta braglið fyrstu línu (annarar línu bragfræðilega séð) mynda sniðrím við endarímið í seinni línunum.Okkur / bræður / undan / rak á / ísi / köldum, |
| © 1994 - 2010 Jón Ingvar Jónsson |