©   1994 - 2010   Jón Ingvar Jónsson Rímnahættir  Bragorðaskrá  Upphafssíða

B r a g f r æ ð i
Breiðhenda

Í breiðhendu eru fjórar ljóðlínur og engin þeirra er stýfð. Rímskipan breiðhendu er víxlrím, þannig að fyrsta og þriðja ljóðlína annars vegar og önnur og fjórða ljóðlína hins vegar, ríma saman. Stuðlasetning er hefðbundin, þannig að annar stuðullinn verður að vera í þriðja braglið fyrstu og þriðju ljóðlínu og höfuðstafur í fyrsta braglið annarar og fjórðu braglínum.

Eins og / sérhver / elfur / dreymir
ofan/fús til / dals og / stranda,
héðan / löngum / hugann / dreymir
hlýjar / vistir / frjórra / landa.
Jón Helgason
©   1994 - 2010   Jón Ingvar Jónsson