©   1994 - 2010   Jón Ingvar Jónsson Rímnahættir  Bragorðaskrá  Upphafssíða

B r a g f r æ ð i
Draghenda

Draghenda er einnig kölluð hrynjandi. Ljóðlínur eru fjórar og engin þeirra er stýfð. Bragliðir eru fjórir í fyrstu og þriðju ljóðlínu, en þrír í annari og fjórðu ljóðlínu. Stuðlasetning er hefðbundin, þannig að annar stuðullinn verður að vera í þriðja braglið fyrstu og þriðju ljóðlínu og höfuðstafur í fyrsta braglið annarar og fjórðu braglínum. Rímið í draghendu er víxlrím, þannig að fyrsta og þriðja ljóðlína annars vegarog önnur og fjórða ljóðlína hins vegar, ríma saman.

Lærður / er í / lyndi / glaður,
lof ber / hann hjá / þjóðum;
hinn er ei / nema / hálfur / maður,
sem / hafnar / siðum / góðum.
Hallgrímur Pétursson
Draghenda og ferskeytla eru einu rímnahættirnir sem hægt er að yrkja sléttubönd undir en sléttubandavísur er hægt að lesa aftur á bak jafnt sem áfram. Til þess að það sé mögulegt verða vísurnar að vera síðstuðlaðar og fyrsti bragliður fyrstu ljóðlínu að ríma við fyrsta braglið þriðju ljóðlínu. Hér að neðan er sléttubandavísa undir draghendum hætti og reyndar afdráttur líka, þannig að seinni hlutinn fæst með því að fella niður fyrsta staf hvers bragliðar í fyrri hlutanum.
Sléttum / hróður, / teflum / taflið,
teygjum / þráðinn / snúna.
Léttum / róður, / eflum / aflið,
eygjum / ráðin / núna.
Sveinn Hannesson frá Elivogum
Lesin aftur á bak lítur vísan svona út:
Núna / ráðin / eygjum, / aflið
eflum, / róður / léttum.
Snúna / þráðinn / teygjum, / taflið
teflum, / hróður / sléttum.

©   1994 - 2010   Jón Ingvar Jónsson