Gunnarshólmi
Sunnan á Íslandi, í héraði því sem gengur upp af Landeyjum, millum Eyjafjalla og
Fljótshlíðar, er allmikið sléttlendi, og hefir fyrrum verið grasi gróið, en er nú
nálega allt komið undir eyrar og sanda af vatnagangi. Á einum stað þar á söndunum,
fyrir austan Þverá stendur eftir grænn reitur óbrotinn, og kallaður Gunnarshólmi,
því það er enn sögn manna, að þar hafi Gunnar frá Hlíðarenda snúið aftur, þegar
þeir bræður riðu til skips, eins og alkunnugt er af Njálu. Þetta er tilefni til
smákvæðis þess, sem hér er prentað neðan við.
- Skein yfir landi sól á sumarvegi,
- og silfurbláan Eyjafjallatind
- gullrauðum loga glæsti seint á degi.
- Við austur gnæfir sú hin mikla mynd
- hátt yfir sveit, og höfði björtu svalar
- í himinblámans fagurtærri lind.
- Beljandi foss við hamrabúann hjalar
- á hengiflugi undir jökulrótum,
- þar sem að gullið geyma Frosti og Fjalar.
- En hinum megin föstum standa fótum,
- blásvörtum feldi búin, Tindafjöll,
- og grænu belti gyrð á dalamótum.
- Með hjálminn skyggnda hvítri líkan mjöll,
- horfa þau yfir heiðarvötnin bláu,
- sem falla niður fagran Rangárvöll,
- þar sem að una byggðarbýlin smáu,
- dreifð yfir blómguð tún og grænar grundir.
- Við norður rísa Heklu tindar háu.
- Svell er á gnípu, eldur geisar undir;
- í ógna djúpi, hörðum vafin dróma,
- skelfing og dauði dvelja langar stundir.
- En spegilskyggnd í háu lofti ljóma
- hrafntinnuþökin yfir svörtum sal.
- Þaðan má líta sælan sveitarblóma;
- því Markarfljót í fögrum skógardal
- dunar á eyrum; breiða þekur bakka
- fullgróinn akur, fegurst engjaval
- þaðan af breiðir hátt í hlíðarslakka
- glitaða blæju, gróna blómum smám.
- Klógulir ernir yfir veiði hlakka;
- því fiskar vaka þar í öllum ám.
- Blikar í lofti birkiþrasta sveimur,
- og skógar glymja, skreyttir reynitrám.
- Þá er til ferðar fákum snúið tveimur
- úr rausnargarði háum undir hlíð,
- þangað sem heyrist öldufalla eimur;
- því hafgang þann ei hefta veður blíð,
- sem voldug reisir Rán á Eyjasandi,
- þar sem hún heyir heimsins langa stríð.
- Um trausta strengi liggur fyrir landi
- borðfögur skeið, með bundin segl við rá;
- skínandi trjóna gín mót sjávar grandi.
- Þar eiga tignir tveir að flytjast á
- bræður af fögrum fósturjarðar ströndum
- og langa stund ei litið aftur fá,
- fjarlægum ala aldur sinn í löndum,
- útlagar verða, vinar augum fjær;
- svo hafa forlög fært þeim dóm að höndum.
- Nú er á brautu borinn vigur skær
- frá Hlíðarenda hám, því Gunnar ríður
- atgeirnum beitta búinn. Honum nær
- dreyrrauðum hesti hleypir gumi fríður
- og bláu saxi gyrður yfir grund; -
- þar mátti kenna Kolskegg allur lýður.
- Svo fara báðir bræður enn um stund;
- skeiðfráir jóar hverfa fram að fljóti;
- Kolskeggur starir út á Eyjasund,
- en Gunnar horfir hlíðarbrekku móti;
- hræðist þá ekki frægðarhetjan góða
- óvina fjöld, þó hörðum dauða hóti.
- "Sá eg ei fyr svo fagran jarðargróða,
- fénaður dreifir sér um græna haga,
- við bleikan akur rósin blikar rjóða.
- Hér vil eg una ævi minnar daga
- alla, sem guð mér sendir. Farðu vel,
- bróðir og vinur!" - Svo er Gunnars saga.
Því Gunnar vildi heldur bíða hel
en horfinn vera fósturjarðar ströndum.
Grimmlegir fjendur, flárri studdir vél,
fjötruðu góðan dreng í heljar böndum.
Hugljúfa samt eg sögu Gunnars tel,
þar sem eg undrast enn á köldum söndum
lágan að sigra ógnabylgju ólma
algrænu skrauti prýddan Gunnarshólma.
Þar sem að áður akrar huldu völl,
ólgandi Þverá veltur yfir sanda;
sólroðinn líta enn hin öldnu fjöll
árstrauminn harða fögrum dali granda;
flúinn er dvergur, dáin hamratröll,
dauft er í sveitum, hnipin þjóð í vanda;
en lágum hlífir hulinn verndarkraftur
hólmanum, þar sem Gunnar sneri aftur.
Jónas Hallgrímsson
|