©   1994 - 2010   Jón Ingvar Jónsson Rímnahættir  Bragorðaskrá  Upphafssíða

B r a g f r æ ð i
Langhenda

Í langhendu eru fjórar ljóðlínur og af þeim eru sú önnur og sú fjórða stýfðar. Stuðlasetning er hefðbundin, þannig að annar stuðullinn verður að vera í þriðja braglið fyrstu og þriðju ljóðlínu og höfuðstafur í fyrsta braglið annarar og fjórðu braglínum. Rímið í langhendu er víxlrím, þannig að fyrsta og þriðja ljóðlína annars vegar og önnur og fjórða ljóðlína hins vegar, ríma saman.

Móður/jörð, hvar / maður / fæðist,
mun hún / eigi / flestum / kær,
þar sem / ljósið / lífi / glæðist
og / lítil / sköpun / þroska / nær?
Sigurður Breiðfjörð

©   1994 - 2010   Jón Ingvar Jónsson