Nýhenda
Í nýhendu eru fjórar ljóðlínur og af þeim eru sú fyrsta og sú þriðja stýfðar. Í öllum ljóðlínum
eru bragliðirnir fjórir. Stuðlasetning er hefðbundin, þannig að annar stuðullinn verður að vera
í þriðja braglið fyrstu og þriðju ljóðlínu og höfuðstafur í fyrsta braglið annarar og fjórðu
ljóðlínu. Rímið í nýhendu er víxlrím, þannig að fyrsta og þriðja ljóðlína annars vegarog önnur
og fjórða ljóðlína hins vegar, ríma saman.
Þegar / Magga / fetar / fold,
finnst mér / tröll úr / hömrum / vakið.
Undir / tveggja / metra / mold
mundi ég / þekkja / fóta/takið.
Hjörtur Kristmundsson
Sigurður Breiðfjörð orti fyrstur rímu undir þessum hætti og gaf honum nafn. Jónasi Hallgrímssyni
hefur ekki þótt mikið til koma og orti til háðungar ferskeytlu, og bætti við hana einum tvílið
í annari og fjórðu ljóðlínu, þannig að úr varð nýhenda.
Er hann að / syngja / enn sem / fyr,
arnar- / vélið / sá hann / -- attan:
"klingkling" / hringja / kleprarn/ir
við / karlinn / hélu/ gráan / -- skrattann.
|