©   1994 - 2010   Jón Ingvar Jónsson Bragorðaskrá  Upphafssíða

B r a g f r æ ð i
Öfugmælavísur

Öfugmælavísur eru fullar af þversögnum eða fáránlegum staðhæfingum. Hér að neðan eru þrjár öfugmælavísur eftir Bjarna Jónsson borgfirðingaskáld, en hann var þekktur fyrir slíkar vísur.

Fiskurinn hefur fögur hljóð,
finnst hann oft á heiðum.
Ærnar renna eina slóð
eftir sjónum breiðum.

- - - - -

Fljúgandi ég sauðinn sá,
saltarann hjá tröllum,
hesta sigla hafinu á,
hoppa skip á fjöllum.

- - - - -

Í eld er best að ausa snjó,
eykst hans log við þetta.
Gott er að hafa gler í skó
þá gengið er í kletta.
©   1994 - 2010   Jón Ingvar Jónsson