| © 1994 - 2010 Jón Ingvar Jónsson | Rímnahættir  Bragorðaskrá  Upphafssíða |
|
|
|
Samhenda
Í samhendu eru allar fjórar ljóðlínurnar stýfðar og ríma þær allar saman. Hver ljóðlína samanstendur af fjórum bragliðum. Stuðlasetning er hefðbundin. Stuðull verður að vera í þriðja braglið fyrstu og þriðju ljóðlínu og höfuðstafur verður að vera í fyrsta braglið annarar og fjórðu ljóðlínu. Vanda/samt er / sjómanns / fag, Hagkveðlingaháttur er án efa vinsælasta rímafbrigði samhendu og yfir höfuð einn vinsælasti háttur vísna enn í dag. Þegar á / skútu / fékk sér / far, Samhenda hefur lengi verið vinsæl og er enn. Dýrar og snjallar verður vart ort en í eftirfarandi vísu: Snauður, / þjáður / bað um / brauð, Vísnadæmin þrjú hér að ofan eru öll úr Rímum af Oddi sterka. Samhenda er á engann hátt frábrugðin gagaraljóðum og stafhendu hvað skipan bragliða varðar. Það mætti reyndar líta á þessa hætti sem þrjú mismunandi rímafbrigði við sama rímnahátt. |
| © 1994 - 2010 Jón Ingvar Jónsson |