Skarphéðinn í brennunni
Buldi við brestur,
brotnaði þekjan.
Reið niður rjáfur
og rammir ásar.
Skall yfir eldhafið ólgandi, logandi,
eldvargar runnu fram hvæsandi, sogandi.
Reykurinn glóðþrunginn gaus upp úr kafinu.
Gaflaðið eitt stóð sem klettur úr hafinu.
Nár var þá Njáll,
nár var Bergþóra.
Burtu var Kári,
brunninn Grímur,
höggvinn Helgi.
Héðinn stóð einn
tepptur við gaflað
og glotti við tönn.
Gulrauðar glóðir
glampa og braka.
Blóðroðin birta
blaktir um garpinn.
Skín hún á andlitið skarpfölt og tannirnar,
skiptandi blæ, meðan logaráðs hrannirnar
flétta úr eldtungum umgjörðir titrandi
utan um hetjuna, bjartar og glitrandi.
Hélt hann á rammri
Rimmugýgi.
"Hvað er nú öx mín!
Hitnar þér nokkuð?
Þú skyldir eigi
svo þurrmynt vera,
væri í annað
en eld að bíta".
Gunnspáir glóðu
geislar á hyrnu,
stirndi á stál
og stæltar eggjar.
Skarphéðinn glotti við skínandi stálinu:
"Skil ég þig, öx mín, ber kveðjur úr bálinu".
Hefndþrungna bengýgi hóf upp og lét 'ana
hverfa í gaflaðið, langt upp á fetana.
Leit hann á eldbranda
aðfallandi.
Hvað var í huga
Höskulds bana?
Kominn bónleiður
til búðar hinztu
eldibrand tók sér
í axar stað.
Aleinn örlögum
ofurseldur
horfðist í augu
við eld og dauða.
Færðust að logarnir, brestandi, brakandi,
báldrekar skriðu fram, eldmakka skakandi,
lögðust að fótum hans, fæturna sleikjandi
flakandi tungum, og glóðmökkum hreykjandi.
Hnykluðust vöðvar
á herðum þreknum,
efldum er armi
upp hann lyfti,
losaði kyrtil
frá loðnu brjósti,
helrún brenndi þar:
inn helga kross.
Beit svo á kampinn og krosslagði armana,
karlmennskuró sló um ennið og hvarmana.
Ljómandi kringum hann logarnir kvikuðu,
ljósgeislar fagnandi á honum blikuðu.
- - - - -
Dimmt er í skála,
dökkir mekkir
hefjast úr ösku
og hrundum rústum.
Inni við gaflað
í ösku stendur
Héðinn örendur
með opnum sjónum.
Heyrzt ei hafði
hósti né stunur.
Hannes Hafstein
|