Stefjahrun
Stefjahrun hefur fjórar ljóðlínur og eru allar stýfðar. Rímið er víxlrím, það er
síðustu bragliðir fyrstu og þriðju ljóðlínu ríma saman og síðustu bragliðir annarrar
og fjórðu ljóðlínu ríma saman. Fyrsta og þriðja ljóðlína hafa fjóra bragliði en önnur og
fjórða ljóðlína hafa þrjá bragliði.
Æðir / sjór um / öldu/stokk,
iða / tár um / hvarm.
- Ég hef / falið / ljósan / lokk
lengi / við minn / barm.
Jóhannes úr Kötlum
Stefjahrun er fremur sjaldséður bragarháttur. Oddhent stefjahrun er að sönnu
glæsilegt en um leið erfið rímþraut:
Er / aftur / sá ég / öldum / frá
okkar / bláa / land,
varstu / dáin. / Drúptu / þá
döpur / strá við / sand.
Jakob Jóhannesson Smári
Stefjahrun er eins og ferskeytla fyrir utan það að önnur og fjórða lína í stefjahruni eru stýfðar.
|