©   1994 - 2010   Jón Ingvar Jónsson Rímnahættir  Bragorðaskrá  Upphafssíða

B r a g f r æ ð i
Stuðlafall

Stuðlafall hefur þrjár línur og er fyrsta línan sem ekki er stýfð sér um stuðla. Þar verður síðari stuðullinn að vera í þriðja braglið, þótt ekki sé endilega rangt ort ef stuðlasetning er önnur. Seinni línurnar tvær eru stýfðar með fjóra bragliði og mynda saman endarím. Stuðull verður að vera í þriðja braglið annarar línu og höfuðstafur í fyrsta braglið þriðju línu:

Tíminn / mínar / treinir / ævi/stundir.
Líkt sem / kemba er / teygð við / tein
treinir / hann mér / sérhvert / mein.
Páll Ólafsson
Þó að stuðlafall sé nokkuð gamall rímnaháttur, er það enn nokkuð vinsælt, og má til dæmis sjá eftirfarandi húsgang í dagblaði nokkrum mánuðum áður en 20. öldin rennur sitt skeið á enda:
Sumir / spinna, / sumir / kemba og / tæja,
sumir / lopa, / sumir / ull.
Sumir / skrifa / eintómt / bull.
Það ætti ekki að vera erfið þraut að setja saman stuðlafall.

©   1994 - 2010   Jón Ingvar Jónsson