©   1994 - 2010   Jón Ingvar Jónsson Rímnahættir  Bragorðaskrá  Upphafssíða

B r a g f r æ ð i
Stúfhenda

Stúfhenda samanstendur af tveimur ljóðlínum sem báðar eru stýfðar og mynda saman endarím. Fyrri ljóðlínan samanstendur af sex bragliðum en sú seinni af fjórum. Stuðlar í fyrri ljóðlínu eru þrír og verður stuðull að vera í þriðja braglið og síðasti stuðull verður að vera í fimmta braglið. Seinni ljóðlínan er sér um tvo stuðla.

Út í / geiminn / ákaft / leita / augu / mín.
Hvað er / það, sem / þarna / skín?
Jóhannes úr Kötlum
Stúfhenda er nákvæmlega eins og fyrstu tvær ljóðlínur valhendu. Reyndar má líta á fyrri ljóðlínuna sem tvær ljóðlínur, með fjóra og tvö bragliði eins og dverghenda. Auðveldari bragþraut en stúfhenda er vandfundin.

©   1994 - 2010   Jón Ingvar Jónsson