©   1994 - 2010   Jón Ingvar Jónsson Rímnahættir  Bragorðaskrá  Upphafssíða

B r a g f r æ ð i
Úrkast

Úrkast hefur fjóra bragliði í fyrstu og þriðju ljóðlínu sem mynda kvenrím. Í annari ofg fjórðu ljóðlínu eru aðeins tveir bragliðir og mynda þeir einnig kvenrím. Rímskipan er því víxlrím.

Veröld / hlær á / vorsins / degi,
vaknar / hani.
Bílar / út um / alla / vegi
eru á / spani.
Haraldur Hjálmarsson frá Kambi
Stundum flytjast síðasta atkvæði fyrstu ljóðlínu og síðasta atkvæði þriðju ljóðlínu niður í næstu ljóðlínu og verða þau þar að forliðum, en fyrsta og þriðja ljóðlína verða stýfðar, líkt og kemur fyrir í dverghendu.
Það er / ekki / þorsk að /
úr / þessum / firði;
þurru / landi / eru þeir / á
og / einskis / virði.
Páll Ólafsson

©   1994 - 2010   Jón Ingvar Jónsson