Valhenda
Valhenda er þrjár ljóðlínur og hefur sú fyrsta sex bragliði en hinar fjóra bragliði og eru
allar ljóðlínur stýfðar og ríma allar saman. Stuðlar í fyrstu ljóðlínu eru þrír og verður
stuðull að vera í þriðja braglið og síðasti stuðull verður að vera í fimmta braglið. Í
annarri línu verður að vera stuðull í þriðja braglið og höfuðstafur í þriðju línu
verður að vera í fyrsta braglið.
Jörðin / grær og / líka / lifna / ljóð í / hug.
Vetrar/tíðin / vék á / bug.
Vonar/haukar / þreyta / flug.
Sveinbjörn Beinteinsson
Reyndar má líta á fyrstu ljóðlínuna sem tvær ljóðlínur, með fjóra og tvö bragliði eins og dverghenda.
|