Vikhenda
Vikhenda eða stuðlavilla er þrjár ljóðlínur og hefur sú fyrsta fimm bragliði, en önnur ljóðlína
fjóra og sú þriðja þrjá. Síðustu bragliðir fyrstu og þriðju ljóðlínu eru tvíliðir og ríma saman.
Síðasti bragliður annarar ljóðlínu er stúfur. Fyrsta ljóðlínan er sér um stuðla og eru stuðlarnir
í fyrsta og þriðja eða öðrum og þriðja braglið. Í annari línu eru tveir stuðlar og höfuðstafur
í þriðju ljóðlínu.
Það er / sagt að / segi / fátt af / einum,
enda / gerist / æði-/margt
innst í / myrkra/leynum.
Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum
Vikhenda er mjög sjaldséður bragarháttur, hvort sem er í rímum eða öðrum kveðskap og er það
undarlegt vegna skemmtilegs blæs hennar. Elsta þekkta vikhenda ríman er frá fyrri hluta nítjándu
aldar, en í þjóðsögu um Sæmund fróða Sigfússon er sannarlega að finna gamla vísu undir þessum hætti:
Ósk þá / vildi' eg / eiga / mér svo / góða,
að eg / ætti / syni / sjö
með / Sæmundi' / hinum / fróða.
|