©   1994 - 2010   Jón Ingvar Jónsson Grunnatriði bragfræðinnar  Upphafssíða

B r a g f r æ ð i
Bragliðir (viðbót)

Bragliður getur verið eitt atkvæði (stúfur) eins og eftirfarandi dæmi sýnir, en slíkt er mjög vandmeðfarið:

Skáld / skrifta og / játa,
Skáld / hlæja og / gráta.
Davíð Stefánsson

Í Skáldskaparmálum Snorra Sturlusonar finnast meðal annars eftirfarandi tvö dæmi, þar sem ekki fylgir áherslulétt atkvæði stuðli.

Páll varð und fit falla
fram þráð barni arnar.

spjót náðu blá bíta
Búandmenn hlutu þar renna.

Þeim, sem eru að stíga sín fyrstu spor við bragsmíðar, er ráðlagt að nota stúfa eingöngu aftast í ljóðlínum.

©   1994 - 2010   Jón Ingvar Jónsson