| © 1994 - 2010 Jón Ingvar Jónsson | Grunnatriði bragfræðinnar  Upphafssíða |
|
|
|
Stuðlar (viðbót)
Í löngum ljóðlínum eru stundum tveir bragliðir á milli stuðla. Í dæminu hér að neðan eru sex bragliðir í fyrstu og þriðju línu og verða annar bragliðurinn og sá þriðji áhersluléttir. Fjórði bragliðurinn fær hins vegar aukna áherslu. En / krakkar / eiga að / lúlla og / konur / þurfa / hlé, Reyndar má líta á þetta þannig, að bragliðir séu færri og koma þá bragliðir með fjórum atkvæðum til sögunnar, það er tvöfaldir tvíliðir. En / krakkar eiga að / lúlla og / konur þurfa / hlé, Eftirfarandi dæmi sýnir bragliði með fjórum atkvæðum. Krummi upp í / hæðardragi / kroppar úldið / bein Sé litið á löngu bragliðina sem tvo tvíliði eru þrír bragliðir á milli stuðla, annars bara einn. Í fornum háttum, til dæmis fornyrðislagi, er algengt, að fleiri en einn bragliður sé á milli stuðla. Næmt brageyra þarf til að yrkja undir háttum sem þessum og erfitt er að varpa fram haldgóðum reglum um þá. |
| © 1994 - 2010 Jón Ingvar Jónsson |