Þessar síður eiga að veita þá innsýn í bragfræði, sem nauðsynleg er, til að yrkja háttbundnar
vísur og þjálfa með sér næmt brageyra. Háttbundinn kveðskapur lifir enn, ekki síst á Netinu, en
þó kemur oft í ljós, að kunnáttu í bragfræði er ábótavant. Grunnatriði bragfræðinnar, sem hér
eru fram sett, ættu að geta bætt úr því og sé lærdómnum fylgt eftir með tilraunum, ættu flestir
að geta þjálfað með sér næmt brageyra.
|
"Auðséð er, að bragregla er ekki trygging þess að kvæði sé mikils virði, en
alltaf er leitt að sjá fagra hugsun í tötrum."
|
|
Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoði
|
|