Þetta forrit er sett fram til gamans, en eflaust má hafa einhver not af því. Orðaskráin sem liggur til grundvallar forritinu er alls ekki fullkomin. Sú staðreynd takmarkar forritið auðvitað, en það á þó að ráða við stafi eins og t.d. é, y, ý, x eða z og kunna að ríma smeygi við eigi eða vegi og jafnvel milt við gyllt. Sá galli er á forritinu að ekki er gerður greinarmunur á framburði orða sem galli (missmíð) eða galli (klæðnaður) enda erfitt að sjá hvað sá meinar sem slær orðið inn. Ekki er gert ráð fyrir rími með fleiri en þremur atkvæðum.