Rímbankinn er skrifaður í PHP en hér er rímleitarforrit sýnt í Perl. Reglulegar segðir (regular expressions) gegna lykilhlutverki.
Fyrsta skrefið er gerð orðabókar sem helst skal vera í stafrófsröð og innihalda tvo dálka. Í fyrri dálkinum er rétt stafsett orð en í þeim seinni er orðið ritað eftir nokkurskonar framburðarstafsetningu, en þó þannig að allir samhljóðar fram að fyrsta sérhljóða hafa verið felldir út. Þetta er gert vegna þess að orð ríma ef þau hljóma eins frá og með fyrsta sérhljóða.
Orðabókina er hægt að búa til með eftirfarandi forriti:
Forritið les inn orð sem skulu vera rétt rituð. Í línu 9 eru bil, ef einhver eru, fjarlægð framan og aftan af lesnu orði. Þá er orðið geymt til að geta ritað það óbrenglað í orðabókina (lína 10). Í línu 11 er hástöfum breytt í lágstafi, y í i, ý í í og z í s. Í línum 12 og 13 er é breytt í je og x breytt í ks. Í línu 14 eru samhljóðar fjarlægðir fram að fyrsta sérhljóða. Lína 15 er til að geta t.d. rímað eigi við smeygi og tregi. Að þessu loknu skrifar forritið orðið eins og það las það í einn dálk og í annan dálk orðið eins og það breyttist í meðförum forritsins (lína 17).
Et við eigum orðalista í skrá ord.lst er forritið keyrt þannig:
/home/heimskringla/rim> rimord.pl < ord.lst > ordabok.txt
Þá les forritið skrána ord.lst línu fyrir línu og skrifar úttakið í ordabok.txt.
Gefum okkur að skráin ord.lst innihaldi eftirfarandi færslur:
smeygi sveigi tregi
Eftir keyrslu rimord.pl inniheldur skráin ordabok.txt eftirfarandi færslur:
smeygi eigi sveigi eigi tregi eigi
Þessi orð ríma öll, því seinni dálkur allra línanna er eins.
Rímleitarforrit gæti litið svona út:
Forritið les orð sem ríma skal við (lína 7) og brytjar það niður á sama hátt og við gerð orðabókarinnar í dæminu að ofan og geymir í breytu $inn (línur 9 til 15). Listin að finna viðeigandi rímorð er nú einföld, en hún er sú að lesa alla orðabókina og skrifa út fyrri dálk (rétt stafsett orð) línanna þar sem seinni dálkurinn er nákvæmlega eins og niðurbrytjað innslegið orð sem geymt var í $inn.
Hér er lítið dæmi um keyrslu rímleitarforritsins:
/home/heimskringla/rim> rim.pl skáld sáld skáld virði birði byrði firði girði gyrði hirði myrði Nirði smyrði spyrði stirði virði yrði þyrði hrossi blossi fossi glossi hnossi hossi hrossi kossi krossi neytandi breytandi heitandi leitandi neitandi neytandi skeytandi skreytandi veitandi þeytandi þreytandi mjöðm mjöðm kex bleks kex leks pex reks rex seks sex spreks vex þreks helzt dvelst elst felst gelst helst hélst kvelst selst stelst telst velst /home/heimskringla/rim>
Hér sést að ekki þarf stór forrit til að finna rímorð en góð orðabók er mikilvæg. Það má líka hugsa sér fullkomnari framburðarstafsetningu en hér er notuð, en það krefst þó nokkurrar fyrirhafnar ætli maður að ná mun betri árangri en hér hefur náðst.